Á landsmótsári er sérstaklega gaman að fylgjast með kynbótahrossum.  Þess vegna verður boðið upp á námskeið í byggingu kynbótahrossa fimmtudaginn 9. maí.

Námskeiðið byggir að hluta til á fyrirlestrum en markmið með því er að bjóða upp á ítarlega fræðslu um byggingu hrossa og hvaða atriði er verið að meta þegar hver eiginleiki byggingar er dæmdur. Einnig verður farið yfir reglur kynbótasýninga og það hvernig best er að stilla hrossi upp í byggingardómi.

Dagksrá:
Fyrirlestur frá kl. 10:00-12:00 í veislusalnum í Lýsishöllinni (2 hæð í reiðhöllinni).
Verklegt er frá kl. 13:00-15.30 í Lýsishöllinni

Kennari á námskeiðinu verður Elsa Albertsdóttir erfða- og kynbótafræðingur.
Heildarverð eru 7.000 kr. og innifalið eru námskeiðsgögn.

Ef ekki næst lágmarksþátttaka þá verður námskeiðið fellt niður.

Skráning fer að sjálfsögðu fram í gegnum Sportabler.