Kennsla í knapamerkjum hefst mánudaginn 12. janúar nk. Boðið verður upp á öll knapamerkin en það þurfa a.m.k. að vera 4 í hverjum hóp til að það verði kennd. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum og svo helgarnámskeið í knapamerki 1 ef það hentar einhverjum.

Knapamerki 1 á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:00 alls 10 verklegir tímar og próf kr. 25.500

Knapamerki 1 á laugardögum og sunnudögumn kl. 11:00-12:00:00 alls 10 verklegir tímar og próf kr. 25.500

knapamerki 2 á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:00 alls: 16 verklegir tímar og próf kr. 39.500

Knapamerki 3 á mánudögum og miðvikudögum kl. 18:00 alls: 19 verklegir tímar og próf kr. 46.500

Knapamerki 4 á mánudögum og miðvikudögum kl. 19:00 alls: 21 verklegir tímar og próf kr. 49.500

Knapamerki 5 á mánudögum og miðvikudögum kl. 20:00 alls: 23 verklegir tímar og próf kr. 54.000

Ekki er alveg búið að ganga frá ráðningum reiðkennara en það verða allt kennarar með mikla reynslu í kennslu knapamerkja sem munu kenna námskeiðin.

Ef áhugi er á öðrum tímasetningum þá vinsamlega hafið samband á fakur@fakur.is og við finnum annan  tíma fyrir námskeiðið.

Skráning er á sportfengur (sjá eftirfarandi slóð) og borga þarf kr. 5.000 staðfestingargjald svo skráning sé gild.

http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add

1. Velja námskeið.
2. Velja hestamannafélag (Fákur).
3. Skrá kennitölu þátttakanda – (Ef kennitala ekki í félagaskrá, þarf að sækja um félagsaðild að Fáki).
4. Velja atburð (Knapamerki 2015 og svo þann hóp sem á að skrá í).
5. Setja í körfu.
6. Velja greiðslufyrirkomulag: Greiðslukort eða millifærsla. Skráning telst ekki gild nema greiðsla hafi borist.