Caroline Aldén og Sigurgeir Jóhannsson búa á Selfossi, hafa járningar að fullri atvinnu og reka þar sitthvort járrningafyrirtækið.

Caroline er frá Svíþjóð og hefur búið að íslandi síðan 2010 og hefur lokið 3.ára námi við járningarskólan Wången í Svíþjóð, Sigurgeir lauk námi frá sama skóla vorið 2021. Bæði hafa þau lengi verið í hestum og áhuginn fyrir járningum vaknaði snemma.

Þau hafa mikla reynslu af járningum, allt frá ferðahestum til topp keppnins og kynbótahrossa. Caroline starfar einnig sem járningakennari á hestabraut í Fjölbrautarskóla Suðurlands.

Bókleg kennsla og sýnikennsla fer fram föstudaginn 22. mars frá kl.18-22.

Verkleg kennsla laugardaginn 23.mars  9-12 og 13-16.
Verkleg kennsla sunnudaginn 24.mars 9-12 og 13-16.

Hver og einn þátttakandi kemur með sinn hest og járningaáhöld.

Verð 25.000kr
Innifalið í verðinu eru skeifur (skaflar) og fjaðrir.

Skráning fer fram á sportabler