Dagana 15-16.jan verður haldið járninganámskeið með Leó Hauks.
Leó hefur starfað við járningar í fjölda ára og útskrifaðist í vor úr járningamanna skólanum á Hólum en það var jafnframt fyrsti árgangurinn sem útskrifaður var úr því námi. Leó hefur víðtæka reynslu af járningum en á þessu námskeiði verður markmiðið að fara í helstu atriði sem tengjast járningu og hófhirðu hrossa.
Námskeiðið eru tveir dagar en fyrri daginn er stuttur hittingur, spjall þar sem Leó fer yfir helstu atriðin og seinni daginn er verkleg kennsla. Nemendur koma með eigin verkfæri og þurfa að hafa hest til umráða til að járna.
Dagskrá:
  • 15.jan föstudagur kl 17:00 í andyrirnu í reiðhöllinni
  • 16.jan laugardagur kl 09:00 í vélargeymslunni í reiðhöllinni
Takmarkaður fjöldi plássa er í boði svo um að gera að vera fljótur að skrá sig! Skráning er hafin
Verð: 19.000 kr
Ath. Félagið áskilur sér rétt til að fella niður námskeið ef ekki næg þátttaka næst