Miðvikudaginn 22. apríl næstkomandi er hinn árlegi hreinsunardagur Fáksmanna. Hreinsunardagurinn hefst klukkan 17:00 og stendur í tæpa tvo tíma. Vegna COVID-19 verður því miður ekki grill á eftir.

Hægt er að nálgast ruslapoka og einnota hanska í anddyri reiðhallarinnar.

Gámar verða staðsettir í Almannadal, í Víðidal og við félagsheimilið.

Þeir sem eiga hey á rúllu- og baggasvæðinu við reiðhöllina eru beðnir að taka sérstaklega vel til þar.

Við vonum að sem flestir taki þátt því margar hendur vinna létt verk!