Er hesturinn í góðum haga. Er hugsað vel um þitt hross, er haginn í lagi? Námskeiðið er haldið í samstarfi Endurmenntunar LbhÍ, Landssamband hestamannafélaga, Félag hrossabænda og Landgræðslu ríkisins. Námskeiðið er einkum ætlað hestamönnum, eigendum beitarlands og starfsmönnum sveitarfélaga sem sinna landnýtingarmálum. Á námskeiðinu fjallar Bjarni Maronsson, Landgræðslu ríkisins, um áhrif hrossabeitar á gróður og jarðveg og mismunandi beitarskipulag fyrir hross. Einnig verða kynntar aðferðir til að meta beitarástand lands, landlæsi og fjallað um leiðir til úrbóta vegna hrossabeitar.

Staður: Félagsheimili hestamannafélagsins Fáks í Víðidal, Reykjavík.
Stund: þri. 19. mars kl. 19:45-22:30. Skráningarfrestur miðast við 14. mars.
Verð: 3500 kr (fræðsla, gögn og molasopi).

Skráning og greiðsla þátttökugjalds fer fram um heimasíðuna www.lbhi.is/namskeid