Hið margrómaða Herrakvöld Fáks verður haldið laugardaginn 15. október næstkomandi í Félagsheimili Fáks í Víðidal.

Miðasala fer fram í Skalla Hraunbæ og hefst miðvikudaginn næstkomandi, 12. október, og er opin til 12:00 þann 15. október. 

Veislustjóri er okkar eiginn Sigurður Svavarsson og ræðumaður kvöldsins er hinn þjóðþekkti fréttamaður og skemmtikraftur; Gísli Einarsson.

Að þessu sinni verður steikarhlaðborð að hætti Grillvagnsins.

Húsið opnar 19:00

Húsið opnar fyrir konur 22:30.

Trúbatorinn Hlynur Snær heldur uppi stuði fram á nótt.

Miðaverð 8.000 kr.