Hið margrómaða Herrakvöld Fáks verður haldið laugardaginn 2. október næstkomandi í Félagsheimilinu í Víðidal.
Þetta mikla gleðikvöld verður með hefðbundnum hætti; villibráðarhlaðborð að hætti Silla kokks, happdrætti, góðir drykkir á barnum og góðir menn í salnum.
Miðasala fer fram í Skalla Hraunbæ.
Dagskrá:
Húsið opnar 18:00
Fordrykkur
Borðhald hefst 19:00
Veislustjóri er Þröstur 3000
Ræðumaður kvöldsins er Eyþór Ingi tónlistamaður og leikari.
Verð 8.500 krónur.
Villibráðarhlaðborð Silla:
Rjúpusúpa
Smjördeigskoddi fylltur með gæsalæra confit og beikonsultu
Kaldir réttir
Graflax með sinnepssósu
Kaldreykt Epla og hvítvínsmarineruð gæsabringa á salatbeði með camenbert og eplachutney
Gæsalifrarkæfa með púrtvínshjúp
Villibráðarpaté með trönuberjasósu
Reyktur og grafinn skarfur með bláberjum
Hrossafille í soja og wasabi
Appelsínugrafið dádýr með parmesan – trufflu balsamikediki og appelsínu
Heitir réttir
Hreindýrabollur með sveppum og lauk
Hreindýr á rusty með villisveppaduxel og villisoði
Villibráðarpottréttur í tartalettum
Risottobollur með gæs og villisveppum
Bláberjamarineruð heiðagæsabringa
Með fennel og döðlu sætkartöflumús, sykurbrúnuðum kartöflum, bleiku eplasalti, heimalagað rauðkál og villibráðarsósa.
Desert
Kaffi og konfekt