Keppnisnámskeið fyrir börn og unglinga með Vigdísi Matthíasdóttur í TM-Reiðhöll Fásks dagana 27. – 28. janúar. Námskeiðið verður þannig uppsett að hver nemandi færi einkatíma laugardag og sunnudag ca 1 klst. Tilvalið fyrir þau sem ætla í úrtöku fyrir landsmót næsta sumar.
Aldurstakmark er 10 -17 ára. Námskeiðsgjald er krónur 15.000.- Athugið takmarkað framboð tíma fyrstur kemur fyrstur fær.
Skráning fakur@fakur.is