Skráning á sportabler er nú hafin á námskeið hjá Jóhannu Margréti Snorradóttur landsliðskonu. Hún ætlar að vera með 2x40min einkatíma helgina 8-9 mars í reiðhöllinni í C tröð.
Verð 31.000kr fyrir fullorðna
Verð 25.000 kr fyrir börn, unglinga og ungmenni. Börn, unglingar og ungmenni fá reiðhallargjaldið endurgreitt en greiða þarf fullt verð fyrir námskeiðið og til að fá endurgreiðslu (6000kr) þarf að hafa samband við Einar á netfangið einar@fakur.is.
Jóhanna Margrét útskrifaðist sem reiðkennari frá Háskólanum á Hólum árið 2018. Í dag starfar við þjálfun og reiðkennslu á Árbakka hjá Hestvit.
Jóhanna hefur átt góðu gengi að fagna á keppnisvellinum og stendur í fremstu röð afreksknapa. Hún er heimsmeistari í tölti, samanlögðum fjórgangsgreinum og þrefaldur Íslandsmeistari.
Hún var einnig valin íþróttaknapi ársins 2023 og íþróttamaður Mána.