Hrossakjötsveisla verður haldinn laugardaginn 12. nóvember í Harðarbóli
Húsið opnar kl 19.00
Fordrykkur
8rétta hlaðborð að hætti Hadda kokks
Gómsætur eftirréttur
Veislustjóri hinn eini sanni GUÐNI ÁGÚSTSSON (eins gott að vera með magavöðvana í þjálfun, hláturinn lengir lífið)
Eyfi Kristjáns mætir með þær stöllur Nínu og Álfheiði Björk
Bráðfyndin myndasýning
Hlynur Ben trúbador spilar fyrir dansi fram eftir nóttu
Miðaverð aðeins kr 7.500.- Miðinn gildir sem happdrættismiði að venju
Hrossakjötsveislan er opinn öllum hestamönnum, konum og köllum. Takið með ykkur gesti.
Allur ágóði rennur til stækkunar Harðarbóls.
Miðapantanir á hakon@tryggir.is Fyrstur kemur fyrstur fær.