Sunnudaginn 1 mars verður haldið grunnnámskeið í hestanuddi fyrir hestaeigendur. Námskeiðið byrjar á bóklegum hluta sem verður í Guðmundarstofu.
Ath námskeiðið er fyrir unga sem aldna. Það verður síðan boðið uppá  framhaldsnámskeið eftir grunnnámskeiðið.

Verð: 6000kr

Dagskrá og lýsingu má sjá hér að neðan.

Kl. 11 – 13 (m. matarhléi)

  • Farið verður í gegnum helstu vöðvahópa hestsins, staðsetningu og hlutverk.
  • Farið í helstu nuddgrip sem notuð eru. Einnig hvenær nudd getur verið nytsamlegt og hvenær ekki á að nota nuddmeðferð.
  • Einnig verður farið í hvað helstu vandamálin eru og hvernig við getum notað nuddmeðferð til að bæði fyrirbyggja og meðhöndla.

Kl. 13:30 – 16/17

  • Farið verður í verklega kennslu þar sem nemendur verða 2 með einn hest og æfa sig. Farið verður í nuddaðferðir og æfingar

 

Hámarksfjöldi er 20 þátttakendur.

 

Kynning á fyrirlesara

Auður Sigurðardóttir/Hestanudd og heilsa –  starfar meðal annars sem hestanuddari þar sem markmiðið er að stuðla að almennri heilsueflingu fyrir hross á öllum aldri og öllum stigum þjálfunar.

Menntun: Viðurkenndur hestanuddari frá NHT.  Félagi í IEBWA (International Equine Body Worker Association).

 

Að auki:

  • Sjúkraþjálfun og endurhæfing fyrir hesta
  • Nám í Acupressure fyrir hesta
  • Nám í notkun laser í meðferð
  • Nám í tannheilsu hrossa
  • Nám í hófaheilsu hrossa
  • Nám í mátun reiðtygja, hnakka og höfuðútbúnaðar og méla.