Skráning er opin til og með 22. júní og er í fullum gangi á íþróttamót Fáksmanna, Reykjavíkurmeistaramótið, sem er jafnan stærsta og sterkasta íþróttamót Íslandshestamennskunar á hverju ári. Mótið fer fram í Víðidalnum dagana 29. júní – 5. júlí.  

Á Facebook má finna viðburðinn undir nafninu „Reykjavíkurmeistaramót Fáks 2020“ og þar má finna ýmsar upplýsingar um mótið, svo það er um að gera að melda sig eða merkja við „going“ á þann viðburð til að fylgjast með fréttum.

Skráningu á mótið lýkur á miðnætti mánudaginn 22. júní. Skráð er í gegnum SportFeng, https://skraning.sportfengur.com. Allar spurningar varðandi skráningar á mótið skal senda skriflega á skraning@fakur.is. Skráningar sem berast eftir að skráningarfresti lýkur verða ekki teknar gildar.

Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:

  • Nái skráningar ekki 25 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
  • Nái skráningar ekki 10 í flokki fellur flokkurinn niður.
  • Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
  • Keppendur skulu hafa kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og/eða FEIF.

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

  • 7.500 kr – meistaraflokkur og ungmennaflokkur (nema PP1, T3, V2 kr. 7.000)
  • 7.000 kr – 1. og 2. flokkur
  • 5.500 kr – barna- og unglingaflokkur
  • 5.500 kr – 150m, 250m og 100m flugskeið

Það verður mikill hestakostur og glæsileg umgjörð sem einkenna munu Víðidalinn í Reykjavík þessa mótsdaga um næstu mánaðarmót og allir velkomnir að koma og fylgjast með heimsklassa sýningum í öllum keppnisgreinum, styrkleika- og aldursflokkum!

Boðið verður uppá eftirfarandi flokka náist næg þátttaka:

#Flokkur Keppnisgrein
1BarnaflokkurTölt T3
2BarnaflokkurFjórgangur V2
3BarnaflokkurTölt T7
4BarnaflokkurTölt T4
5Opinn flokkurSkeið 250m P1
6Opinn flokkurSkeið 150m P3
7Opinn flokkurFlugskeið 100m P2
8Opinn flokkur – 1. flokkurTölt T3
9Opinn flokkur – 1. flokkurTölt T4
10Opinn flokkur – 1. flokkurFjórgangur V2
11Opinn flokkur – 1. flokkurFimmgangur F2
12Opinn flokkur – 1. flokkurGæðingaskeið PP1
13Opinn flokkur – 2. flokkurTölt T3
14Opinn flokkur – 2. flokkurTölt T4
15Opinn flokkur – 2. flokkurFjórgangur V2
16Opinn flokkur – 2. flokkurFimmgangur F2
17Opinn flokkur – 2. flokkurGæðingaskeið PP1
18Opinn flokkur – 2. flokkurTölt T7
19Opinn flokkur – MeistaraflokkurTölt T1
20Opinn flokkur – MeistaraflokkurTölt T2
21Opinn flokkur – MeistaraflokkurTölt T3
22Opinn flokkur – MeistaraflokkurFjórgangur V1
23Opinn flokkur – MeistaraflokkurFjórgangur V2
24Opinn flokkur – MeistaraflokkurFimmgangur F1
25Opinn flokkur – MeistaraflokkurFimmgangur F2
26Opinn flokkur – MeistaraflokkurGæðingaskeið PP1
27UnglingaflokkurTölt T3
28UnglingaflokkurTölt T4
29UnglingaflokkurFjórgangur V2
30UnglingaflokkurFimmgangur F2
31UnglingaflokkurGæðingaskeið PP1
32UnglingaflokkurTölt T7
33UngmennaflokkurTölt T1
34UngmennaflokkurTölt T2
35UngmennaflokkurTölt T3
36UngmennaflokkurFjórgangur V1
37UngmennaflokkurFjórgangur V2
38UngmennaflokkurFimmgangur F1
39UngmennaflokkurFimmgangur F2
40UngmennaflokkurGæðingaskeið PP1