Gæðingamót Fáks og úrtaka fyrir Landsmót fer fram á félagssvæði Fáks í Víðidal dagana 29. – 31. maí næstkomandi. Vegleg verðlaun verða í öllum greinum og að auki verður hin glæsilega „Gregersen-stytta“ veitt þeim Fákskeppanda sem sýnir prúðmennsku og snyrtimennsku í hvítvetna og er ávallt klæddur Fáksbúningi í allri keppni á meðan á mótinu stendur.

Auk gæðingakeppni verður keppt í tölti og 100 m skeiði.  Keppt er í T1 og T3 sem er fyrir 17 ára og yngri Fáksfélaga (börn og unglinga) en T1 er opið fyrir 18 ára og eldri. Skráning á mótið fer fram á Sportfeng

Keppnisgreinar eru eftirfarandi:

•     A flokkur gæðinga

•     A flokkur gæðinga áhugamenn

•     B flokkur gæðinga

•     B flokkur gæðinga áhugamenn

•     Barnaflokkur

•     Unglingaflokkur

•     Ungmennaflokkur

•     100 m skeið

•     Tölt T3 (börn og unglingar)

•     Tölt T1 aldurstakmark 18 ára á árinu og eldri.

Skráningargjald í gæðingakeppni, ungmennaflokk og T1 er kr.  4.000, kr. 3.000 í barna- og unglingaflokk og í 100 m skeiðið en kr. 2.500 í T3.

Tölt, kappreiðar og fljúgandi skeið er opið öllum að teknu tilliti til aldurs en aðrar greinar eru eingöngu fyrir skuldlausa Fáksfélaga þar sem þar fer fram úrtaka Fáks fyrir Landsmót 2014. Í gæðingakeppninni þarf hesturinn að vera í eigu Fáksfélaga og hann þarf að vera skuldlaus sem og knapi sé hann Fáksfélagi. Mótanefnd Fáks áskilur sér rétt til þess að fella niður keppnisflokka ef þátttaka telst ekki næg.

Skráning fer fram á eftirfarandi slóð: http://temp-motafengur.skyrr.is/  þar er valið mót og síðan Fákur osfrv. Athugið að þeir sem ætla að skrá í áhugamannaflokk skrái á áhugamannagæðingamót Fáks en hinir á gæðingamót Fáks. Skráningafrestur rennur út kl. 18:00 mánudaginn 26. maí.

Að venju ríða áhugamenn í A og B flokki með atvinnumönnum en áhugamenn ríða svo sérstök úrslit laugardaginn 31. maí.

Pollar eru alltaf með á Gæðingamóti Fáks bæði vanir og óvanir. Vanir pollar ríða hægt tölt og fegurðartölt. Óvanir pollar eiga að vera teymdir af forráðamanni. Allir pollar sem eiga grímubúninga eru hvattir til að mæta í þeim. Svo má líka skreyta hestana og um að gera að láta alla regnbogans liti njóta sín. Pollum er ekki sætaraðað en þeir fá allir verðlaunapening frá Fáki. Pollum er ekki heimilt að mæta á stóðhestum. Við pollaskráningu er gott að fá litríkar lýsingar á búningum og hestum en ekki er þörf á ISnúmeri hesta. Ekkert skráningargjald er í pollaflokk en skráning fer fram á skráningarblaði sem liggur upp í Veislusal fram að laugardeginum. Gert er ráð fyrir að pollar komi fram á Hvammsvellinum laugardaginn 31. maí en það verður nánar auglýst þegar dagskrá liggur fyrir.