Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands ætlar að bjóða upp á nýtt og spennandi nám í Reiðmanninum sem er frumtamningar á unghrossum/tryppum.
Námið er haldið í samstarfi við hestamannafélagið Fák, og verður haldið í reiðhöllinni Víðidal.
Kennarar verða Ólafur Andri Guðmundsson og Haukur Bjarnason. Báðir reyndir reiðkennarar og tamningarmenn, og munu þeir kenna námið saman.
Einungis verða 20 pláss í náminu. Námið verður fjórar verklegar helgar, verklegar helgar eru frá föstudegi til sunnudags og hefst kennslan eftirmiðdag á föstudegi. Byrjað er á sýnikennslu og í framhaldinu er verkleg kennsla í litlum hópum. 4-5 verklegar kennslustundir hverja helgi.
Þátttakendur geta fengið dýralæknir til að gera tannheilbrigðisskoðun á sínum hesti gegn greiðslu.
Hægt að fá leigðar stíur á vægu gjaldi yfir námskeiðshelgarnar ef þörf er á því
Verð: 165.000 (hægt er að skipta námskeiðisgjaldi í þrjár greiðslur).
Verklegar helgar verða:
30 .sept – 2 .okt: Fyrirlestur með dýralækni um helstu sjúkdóma hrossa.
14-16. okt: Fyrirlestur um atferlisfræði hrossa. Hrefna Sigurjónsdóttir líffræðingur og prófessor við Háskóla Íslands.
4-6. nóv: Fyrirlestur um fóðurfræði. Einar Ásgeirsson
25-27. nóv: Fyrirlestur með reiðkennurunum um framhaldsþjálfun þar sem nemendur fá leiðsögn hvað tekur svo við.