Í mörgu hefur verið að snúast frá því að ný stjórn tók við. Nú eru flestir að detta í sumarfrí og því er gott að taka stöðuna á stóru málunum sem hafa verið efst á baugi hjá stjórn það sem af er starfsárinu. Hér verður stiklað á stóru um helstu mál sem komið hafa á borð stjórnar frá aðalfundi.
Starfshópur um forgangsröðun íþróttamannvirkja
Skipaður hefur verið starfshópur á vegum menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar um forgangsröðun íþróttamannvirkja í Reykjavík. Það er mikilvægt fyrir Fák að þarfir félagsins fyrir mannvirki séu á þessum lista en eins og er er mannvirkjaþörf félagsins ekki inni í forgangsröðun Reykjavíkurborgar um forgangsröðun mannvirkja. Stjórn Fáks hefur því ritað bréf til starfshópsins um forgangsröðun íþróttamannvirkja á athafnasvæði Fáks. Mannvirki sem eru á lista Fáks varðandi framtíðaruppbyggingu svæðisins eru eftirfarandi:
- Reiðvegir – mikilvægt er að tryggja áframhaldandi uppbyggingu og viðhald reiðvega
- Fáksvangur
- Bygging reiðskemmu 40m x 40m við norðurenda Reiðhallarinnar í Víðidal
- Fáksvangur / yfirbyggður löglegur keppnisvöllur með stúku.
- Félagshesthús – endurnýjun
- Lóðaleigusamningar – samræming lóðarleigusamninga og framtíðarsýn fyrir Víðidalssvæðið
- Reiðskemma 20m x 40m í Almannadal
Fákur byggir ekki upp neina aðstöðu á félagssvæði Fáks nema með aðstoð og aðkomu Reykjavíkurborgar. Það er því mikilvægt fyrir Fák að koma þeim verkefnum sem áhugi er á að hefja á næstu árum á þá lista sem Reykjavíkurborg er að vinna með varðandi forgangsröðun fjárfestinga í íþróttamannvirkjum. Þetta er eitt skref að markmiðinu um frekari uppbyggingu á svæðinu en inniheldur ekki loforð um framkvæmdir.
Reykjavíkurmeistaramót
Reykjavíkurmeistaramót var haldið núna í júní. Metþátttaka var á mótinu en 1.027 skráningar voru á mótið sem er heimsmet í skráningu á íþróttamót íslenska hestsins. Mótið var lengt um einn dag vegna þessara miklu skráninga.

Mótið gekk einstaklega vel fyrir sig þrátt fyrir þennan mikla skráningafjölda og er rétt að þakka þeim hópi sem stóð vaktina, bæði við skipulagningu en ekki síður framkvæmd mótsins. Það er ekki sjálfgefið að hægt sé að halda slíkt mót byggt á vinnuframlagi sjálfboðaliða og þakkar stjórnin þessum hópi fyrir gríðarlega vel unnin störf.
Góður hópur stóð svo vaktina við verðlaunaafhendingu um helgina en stjórnarmennirnir Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir og Ívar Hauksson stóðu vaktina á laugardeginum, ásamt Lindu B. Guðlaugsdóttur, formanni LH. Á sunnudeginum stóð svo Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ vaktina ásamt Lindu. Var það gríðarlegur akkur fyrir hestamenn að fá Willum til að afhenda verðlaun á þessum stærsta viðburði ársins í Íslandshestaheiminum og mikið tækifæri fyrir hann til að fá innsýn inn í okkar íþróttagrein.
Reiðleið um land Korpúlfstaða
Reiðleið um land Korpúlfstaða sem þverar golfvöll GR á Korpúlfstöðum hefur verið malbikuð. GR hafði í upphafi árs 2024 leitað til Fáks um malbikun leiðarinnar að hluta. Eftir umræðu milli Fáks og Harðar var gefið leyfi til malbikunar reiðstígsins að hluta með eftirfarandi hætti:
„Fákur leggst ekki gegn fyrirhuguðum framkvæmdum GK með þeim fyrirvara um að tryggt verði að við hlið malbikaða stígsins verði að lágmarki 1,5 metra breiður reiðstígur við brúna og 2 metrar annarsstaðar með jöfnu og góðu undirlagi og að framkvæmdir séu með samþykki skipulagsyfirvalda í Reykjavík.“
Hins vegar var raunin sú að reiðstígurinn var malbikaður að fullu á stórum hluta golfvallarins. Hestmenn að fulltingi reiðveganefndar Harðar höfðu komist að samkomulagi við golfklúbbinn um stikun reiðleiðar í grasi vallarins. Stjórn Fáks, ásamt formanni reiðveganefndar og reiðveganefnd Harðar fór í vettvangskönnun á golfvöllinn og aðstæður skoðaðar. Reiðleiðin verður unnin frekar að hálfu GR í sumar og var niðurstaða fundarins að fara í aðra vettvangsskoðun síðssumars. Ekki er komin niðurstaða um endanlega útfærslu reiðleiðarinnar.
Taka skal fram að stjórnendur GR eru vilja leysa málið með hestamönnum, þ.a. stjórn Fáks mun áfram vinna með stjórnendum GR að farsælli lausn þessa máls.

Vinnustofa
Haldin var mjög vel heppnuð vinnustofa með Áslaugu Örnu þar sem margar góðar hugmyndir komu fram sem stjórn getur nýtt sér við að skipuleggja félagsstarfið fram undan. Fundurinn byrjaði á því að hrista hópinn saman og fara yfir það hvað einkennir lélegan Fáksanda og hvað einkennir góðan Fáksanda. Var það samdóma álit fundarmanna að neikvæðni, yfirgangur, baktal og rifrildi væru einkenni slæms Fáksanda. Hins vegar eru vildu fundarmenn einkenna góðan Fáksanda sem skemmtilegan, jákvæðan, hvetjandi og uppbyggilegan. Þetta eru því góð Fáksgildi til að fara með inn í sumarið. Stjórnin mun nota haustið til að skipuleggja komandi starfsár með þessar góðu hugmyndir í fararteskinu.
Hefur þú hugmynd fyrir stjórn Fáks? Við viljum endilega heyra. Hér getur þú sent okkur þína hugmynd í sarpinn fyrir félagsstarf félagsins.
Nefndir og félagsstarf
Félagsstarfið verður aldrei fjölbreytt nema með aðstoð og þátttöku sjálfboðaliða. Stjórn félagsins hvetur því þá sem hafa áhuga á að taka þátt í félagsstarfinu, hvort sem það er með þátttöku í nefnd eða með öðrum hætti, að skrá sig í eftirfarandi formi:

Almannadalur
Fulltrúar stjórnar fóru í vettvangsferð í Almannadal þann 7. maí 2025 í því skyni að kanna ástand hesthúsa á svæðinu, notkun þeirra og ólögmæta búsetu í hverfinu. Niðurstaða vettvangsferðarinnar var sú að mjög slæmt ástand er á hverfinu og stór hluti húsa á svæðinu í annarri notkun en deiliskipulag svæðisins segir til um, þ.e. að svæðið sé hesthúsabyggð. Mikil óheimil búseta er á svæðinu og eru mörg hesthús nýtt sem íbúðarhús að fullu. Verið er að innrétta eitt nýlegt hús sem íbúðir sem er fullkomlega óheimilt. Mörg húsanna eru nýtt sem geymslur eða verkstæði, sem er einnig óheimilt. Ástand hverfisins er algerlega óviðunandi og niðurstaðan er sú að byggingarfulltrúinn í Reykjavík mun fara í eftirlit á svæðinu innan tíðar. Mega eigendur húsa í Almannadal því líta á þessi orð sem aðvörun um yfirvofandi eftirlit byggingarfulltrúa í hverfinu.
Eigendum hesthúsa á svæðinu er bent á það að skv. úthlutunarskilmálum húsanna áttu hesthúsin að vera fullgerð árið 2010. Heimildir eru í úthlutunarskilmálum til álagningar sekta séu hús ekki fullfrágengin á tilsettum tíma. Gera má ráð fyrir að slíkar sektarheimildir verði virkjaðar í kjölfar yfirvofandi eftirlits byggingarfulltrúa. Eigendum hesthúsa á svæðinu er því bent á að fara yfir skráð byggingarstig sinna húsa þannig að byggingarstig sé rétt skráð hjá byggingarfulltrúa. Öll hús á svæðinu eiga að vera á loka byggingarstigi, þ.e. fullgerð. Öll búseta í hverfinu er óheimil.
Það er ljóst að bygging reiðskemmu á svæðinu myndi styrkja svæðið til muna og hvetja til uppbyggingar svæðisins. Reykjavíkurborg og Fákur eru hins vegar samstíga í því að engin frekari uppbygging íþróttamannvirkja verði á dagskrá fyrr en hesthús sem byggð hafa verið eru komin í rétta notkun, þ.e. nýtt sem hesthús og óheimil búseta í hverfinu hafi verið upprætt.