Nú um helgina eru námskeið að byrja. Enn er hægt að skrá en skráningu lýkur á morgun föstudag 16 jnaúar kl: 20:00.
Angelique Hofman – hægt er að kaupa 1 tíma annaðhvort laugardag eða sunnudag. Skráning fer fram á sportabler. Angelique leggur áherslu á klassíska reiðmennsku og að bæta færni knapa í ábendingum til að þróa og móta hestinn sinn betur. Siðasti skráningardagur er mánudaginn 12 janúar. Námskeiðið byrjar 17. janúar. Námskeiðið hefst laugardaginn 17 janúar
Ragnheiður Þorvaldsdóttir verður með sirkusnámskeið. Unnið er með hestinn eingöngu í hendi í smellu og brelluþjálfun. Skemmtileg nálgun á hestinn sem eykur samvinnu milli manns og hests. Námskeiðið byrjar 17. janúar.
Kári Steinsson – Kennsla miðast við að byggja hestinn upp á heilbrigðan og markvissan hátt, með áherslu á jafnvægi, samvinnu og framfarir hvers og eins. Einnig er boðið upp á markvissan undirbúning fyrir keppni. Námskeiðið byrjar 7 febrúar