Framhalds aðalfundur Almannadalsfélagsins, félags húseigenda í Almannadal, verður haldinn þriðjudaginn 28 maí 2019 klukkan 20.00.
Fundurinn verður haldinn í félagsheimili Fjáreigendafélagsins í Fjárborg, Ásagötu 2.
Fundarefni:
- Lagabreytingar
- Kynning á forvinnu v/ reiðskemmu í Almannadal
- Stofnun sameiginsleg félags Almannadalsfélagsins og Fjáreigendafélagsins.
- Önnur mál.
Lagabreytingar:
Viðbót við 5. grein: Heimilt er að kjósa varamann í stjórn. Varamaður vinnur með stjórninni í ýmsum verkefnum.
Viðbót við 9. grein: Einnig telst fullnægjandi að boða aðalfund með auglýsingu á Facebook síðu Almannadalsfélagsins og heimasíðu Fáks með meira en 7 daga fyrirvara.
F. h. stjórnar Almannadalsfélagsins.
Bjarni Jónsson