Eins og hefð er fyrir fer firmakeppni Fáks fram sumardaginn fyrsta sem er á fimmtudaginn næstkomandi, 22. apríl. Mótið er ekki ólíkt vetrarleikunum okkar nema í firmakeppninni er heimilt að að ríða hvaða gangtegund(ir) sem er. Upplagt tækifæri til að keppa og sýna sig og sjá aðra.

Ekkert skráningargjald er á firmakeppnina.

Mótið hefst klukkan 13:00. Pollar og börn munu keppa inni í reiðhöll.

Skráning fer fram í link hér að neðan og er opin til miðnættis miðvikudagskvöldið 20. apríl.
Linkur á skráningareyðublað

Við hvetjum knapa til að mæta í sínu fínasta pússi á mótið. Þeir knapar sem keppa í félagsbúningi Fáks eiga kost á því að verða valið glæsilegasta par mótsins.

Boðið er upp á eftirfarandi flokka og í þessari röð:
Pollar – teymdir
Pollar – ríðandi
Börn – Minna vön
Börn – Meira vön
Unglingar
Ungmenni
Konur 2 (minna keppnisvanar)
Karlar 2 (minna keppnisvanir)
Heldri menn og konur (55 ára +)
Konur 1 (meira keppnisvanar)
Karlar 1 (meira keppnisvanir)