Næsti félagsreiðtúr fer fram næstkomandi laugardag, 7. febrúar, klukkan 14:00. Brottför frá Lýsishöllinni.
Hugmyndin er sú að fara meðfram Rauðavatni í áttina að Hólmsheiði, niður Almannadalinn, í gegnum Rauðhóla og heim eins og sýnt er á korti með þessari frétt.
Eins og áður er sagt þá munum við skoða þann möguleika, að skipta hópnum upp í tvo hópa á leiðinni. Fjöldinn, samsetning hópsins og fleira til kemur til með að hafa áhrif á það.
Veðurspáin er góð, smá kalt og stilla og því fullkominn dagur fyrir reiðtúr.
Við hlökkum til að sjá sem flesta!
Gulli og Sirrý
Útreiða- og ferðanefnd
