Það er ekki auðvelt að velja reiðleið þessa dagana!   Við ákáðum að velja besta mögulega undirlagið en þó þannig að við komumst út úr hverfinu…

Okkur sýnist besti kosturinn vera Víðidalur – austurhluti Rauðavatns – gamla brekkan upp í Almannadal – austur fyrir Fjárborgina og svo í gegnum Rauðhólana og heim.  Við hefðum kosið lengri leið en aðstæður bjóða ekki upp á það í þetta skiptið.  Mestu skiptir að hittast, ríða út saman og hafa gaman af.

Hestar í þokkalegri þjálfun eiga að ráða vel við þessa leið en það er hægt að stytta fyrir þá sem það kjósa.  Við hvílum hrossin efst í Almannadalnum og svo aftur í gerðinu við Rauðhóla.

Við vonumst til að sjá sem flesta og vonandi alla þá sem hafa komið með okkur í ferðirnar í vetur. Ekki hika við að deila þessari frétt með hestfærum vinum og vandamönnum.

Kveðjur,

Gulli og Sirrý