Í síðasta félagsreiðtúr mættu um 15 manns þrátt fyrir talsvert rok og hálku. Túrinn gekk vel, við fetuðum vel og tókum mið af aðstæðum.
Næsta laugardag, 7. mars, ríðum við hringinn í kringum Elliðavatn og leggjum af stað að venju frá Lýsishöllinni kl 14:00.
Hestar í þokkalegu formi ráða vel við túrinn enda ætlum við að stoppa amk tvisvar á leiðinni. Við vonumst til að sjá sem flesta og ekki síst þá sem hafa farið með okkur í vetur.
Við áskiljum okkur rétt til að breyta leiðinni ef veður og vindar verða okkur ekki hagstæð.
Við viljum þakka öllum þátttökuna síðast og vonumst til að það sé að myndast góður kjarni í reiðtúrunum.
Kveðjur,
Gulli og Sirrý