Því miður þurftum við að fella niður síðasta reiðtúr þann 7. mars vegna veðurs og vonum nú að lukkan verði okkur hliðholl á laugardaginn kemur.
Þennan sama dag stendur mikið til hjá Fáki Dagur reiðmennskunnar hefst kl 14:00 og Stórsýning Fáks kl 20:00. Við viljum hvetja Fáksmenn til að kynna sér dagskránna hér á heimasíðunni.
Við ætlum að halda okkur við sömu ferð og áætluð var síðast, og ríða hringinn í kringum Elliðavatn og leggja af stað í þetta skiptið frá Lýsishöllinni kl 11:00.
Hestar í þokkalegu formi ráða vel við túrinn enda ætlum við að stoppa amk tvisar á leiðinni. Við vonumst til að sjá sem flesta og ekki síst þá sem hafa farið með okkur í vetur.
Við áskiljum okkur rétt til að breyta leiðinni ef veður og vindar verða okkur ekki hagstæð.
Kveðjur
Gulli, gsm 824-6406
Sirrý, gsm 8600-420