Hestamannafélagið Fákur óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka félagsheimili Fáks á leigu.
Helstu upplýsingar um félagsheimilið eru:
- Tekur 180 manns í sæti.
- Vel útbúið eldhús með öllum helstu tækjum til matargerðar og með innangengum kæli.
- Gott hljóðkerfi.
- Teppi á gólfum og parket fyrir framan svið.
- Gott aðgengi fyrir hjólastóla
- Næg bílastæði
Í umsóknum til félagsins skal tilgreina hvaða fyrirætlanir viðkomandi hefur til dæmis varðandi rekstrarform og til hversu langs tíma.
Vert er að geta að félagsheimilið er bókað hina ýmsu daga fram á næsta haust og mun félagið standa við allar bókanir líkt og samið hefur verið um.
Hestamannafélagið Fákur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Vinsamlega sendið fyrirspurnir eða umsóknir á netfangið fakur@fakur.is
Stjórn Fáks.