Hestamannafélagið Fákur óskar eftir umsjónarmanni við útleigu á veislusölum félagsins.

Um er að ræða félagsheimili Fáks og veislusalinn á 2. hæð reiðhallarinnar í Víðidal. Veislusalirnir hafa undanfarin ár verið í útleigu fyrir ýmsa viðburði eins og afmæli, fermingar, brúðkaup, starfsmannafundi/veislur og svo framvegis.

Jafnframt væri horft til þess að viðkomandi gæti þjónustað Fák varðandi hina ýmsu viðburði sem félagið heldur eins og herra- og kvennakvöld, Uppskeruhátíð og fleiri viðburði í samstarfi við félagið.

Þá er einnig í boði að viðkomandi þjónusti Fák varðandi þrif á fasteignum.

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri, Einar, í síma 898-8445 eða á einar@fakur.is