Dagur reiðmennskunnar og Stórsýning Fáks fer fram laugardaginn 21. mars næstkomandi.

Á Degi reiðmennskunnar verða reiðkennaraefni Háskólans á Hólum með sýnikennslu. Sýningin hefst 14:00 og er frítt inn á sýnikennsluna. 

Um kvöldið fer fram Stórsýning Fáks og hefst sýningin klukkan 20:00. Á eftir sýningunni í anddyri reiðhallarinnar verður trúbator partý með Sigvalda Helga Gunnarssyni.

Dagskrá Dags reiðmennskunnar og Stórsýningar verða auglýst fljótlega.

Verð á Stórsýningu Fáks Kr.
Fullorðnir 3.500 kr.
Unglingar og ungmenni 2.500 kr
Börn 8-13 ára 1.500 kr

Miðasala hefst þriðjudaginn 17. mars í Hesta Kaupfélaginu í Víðidal en opnunartími þar er 15:00 til 18:00 virka daga.

Einnig verður miðasala á Stórsýninguna í reiðhöllinni á laugardeginu frá 14:00 og í hurð um kvöldið.