Líkt og undanfarin ár verður Dymbilvikusýning í Spretti 27. mars í Samskiptahöllinni.

Óskar sýningin eftir fulltrúum frá öllum hestamannafélögum, þar með talið Fáki, til að taka þátt í léttri keppni um flottustu ræktunarhesta (stóðhestar, merar og geldingar) sem eru ræktaðir og í eigu félagsmanna eftirfarandi félaga:

  •    Fákur
  •    Sprettur
  •    Hörður
  •    Sóti
  •    Adam
  •    Sörli
  •    Máni
  •    Sleipnir
  •    Dreyri

Hvetjum við Fáksfélaga að hafa samband við framkvæmdastjóra Spretts, Lilju Sigurðardóttur, um þátttöku í síma 620-4500.