Íslandsmótin eru yfirstaðin og voru Fáksfélagar í fremstu röð í nánast öllum flokkum.
Á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna eignuðumst við 6 Íslandsmeistara en það eru þeir Teitur Árnason sem varð þrefaldur Íslandsmeistari, Konráð Valur sem varð tvöfaldur Íslandsmeistari og Arnar Máni sem varð Íslandsmeistari í T2.
Á Íslandsmóti barna- og unglinga varð Matthías Sigurðsson varð þrefaldur Íslandsmeistari, Þórhildur Helgadóttir tvöfaldur Íslandsmeistari, Kristín Karlsdóttir varð Íslandsmeistari í V1 og Lilja Rún Sigurjónsdóttir varð Íslandsmeistari í gæðingalist.
Fákur óskar Íslandsmeisturum og öllum þeim sem kepptu til hamingju með frábæran árangur.
Íslandsmeistarar í fullorðins- og ungmennaflokki
- Meistaraflokkur T2 – Teitur Árnason og Njörður frá Feti
- Meistaraflokkur F1 – Teitur Árnason og Atlas frá Hjallanesi 1
- Meistaraflokkur 250m skeið – Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk
- Meistaraflokkur 150m skeið – Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II
- Meistaraflokkur 100m flugskeið – Teitur Árnason og Drottning frá Hömrum II
- Ungmennaflokkur T2 – Arnar Máni Sigurjónsson og Arion frá Miklholti
Íslandsmeistarar í barna- og unglingaflokki
- Unglingaflokkur T4 – Matthías Sigurðsson og Dýri frá Hrafnkelsstöðum
- Unglingaflokkur F2 – Matthías Sigurðsson og Hlekkur frá Saurbæ
- Unglingaflokkur samanlagður árangur – Matthías Sigurðsson
- Unglingaflokkur V1 – Kristín Karlsdóttir og Steinar frá Stuðlum
- Unglingaflokkur gæðingalist – Lilja Rún Sigurjónsdóttir og Sigð frá Syðri-Gegnishólum
- Barnaflokkur T4 – Þórhildur Helgadóttir og Kóngur frá Korpu
- Barnaflokkur V2 – Þórhildur Helgadóttir og Kóngur frá Korpu