Hin árlega og skemmtilega Hlégarðsreið verður farin laugardaginn næstkomandi, 6. maí.
Riðið verður til Harðarmanna og endað í matarmikilli súpu, kaffi og desert hjá þeim í Harðarbóli.
Lagt verður af stað frá TM-Reiðhöllinni kl. 13:00 og hvetjum við alla til að mæta og skella sér í hressandi útreiðartúr og félagsskap.