Íþróttamót Fáksmanna, Reykjavíkurmeistaramótið, er jafnan stærsta og sterkasta íþróttamót Íslandshestamennskunar á hverju ári. Mótið fer fram í Víðidalnum dagana 29. júní – 5. júlí.
Mótið sækja sterkustu keppendurnir og keppt er í yngri flokkum, 1. og 2. flokki, sem og meistaraflokki. Í fyrra voru þátttakendur yfir 300 talsins og skráningar þeirra í mismunandi greinar yfir 700.
Á Facebook má finna viðburðinn undir nafninu „Reykjavíkurmeistaramót Fáks 2020“ og þar má finna ýmsar upplýsingar um mótið, svo það er um að gera að melda sig eða merkja við „going“ á þann viðburð til að fylgjast með fréttum.
Einungis verður tekið er við skráningum í Sportfeng dagana 8. – 22. júní. Allar spurningar varðandi skráningar á mótið skal senda skriflega á skraning@fakur.is. Skráningar sem berast eftir að skráningarfresti lýkur verða ekki teknar gildar.
Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:
- Nái skráningar ekki 25 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
- Nái skráningar ekki 10 í flokki fellur flokkurinn niður.
- Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
- Keppendur skulu hafa kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og/eða FEIF.
Skráningargjöld eru eftirfarandi:
- 7.500 kr – meistaraflokkur og ungmennaflokkur (nema PP1, T3, V2 kr. 7.000)
- 7.000 kr – 1. og 2. flokkur
- 5.500 kr – barna- og unglingaflokkur
- 5.500 kr – 150m, 250m og 100m flugskeið
Það verður mikill hestakostur og glæsileg umgjörð sem einkenna munu Víðidalinn í Reykjavík þessa mótsdaga um næstu mánaðarmót og allir velkomnir að koma og fylgjast með.
Boðið verður uppá eftirfarandi flokka náist næg þátttaka:
# | Flokkur | Keppnisgrein |
1 | Barnaflokkur | Tölt T3 |
2 | Barnaflokkur | Fjórgangur V2 |
3 | Barnaflokkur | Tölt T7 |
4 | Opinn flokkur | Skeið 250m P1 |
5 | Opinn flokkur | Skeið 150m P3 |
6 | Opinn flokkur | Flugskeið 100m P2 |
7 | Opinn flokkur – 1. flokkur | Tölt T3 |
8 | Opinn flokkur – 1. flokkur | Tölt T4 |
9 | Opinn flokkur – 1. flokkur | Fjórgangur V2 |
10 | Opinn flokkur – 1. flokkur | Fimmgangur F2 |
11 | Opinn flokkur – 1. flokkur | Gæðingaskeið PP1 |
12 | Opinn flokkur – 2. flokkur | Tölt T3 |
13 | Opinn flokkur – 2. flokkur | Tölt T4 |
14 | Opinn flokkur – 2. flokkur | Fjórgangur V2 |
15 | Opinn flokkur – 2. flokkur | Fimmgangur F2 |
16 | Opinn flokkur – 2. flokkur | Gæðingaskeið PP1 |
17 | Opinn flokkur – 2. flokkur | Tölt T7 |
18 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur | Tölt T1 |
19 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur | Tölt T2 |
20 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur | Tölt T3 |
21 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur | Fjórgangur V1 |
22 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur | Fjórgangur V2 |
23 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur | Fimmgangur F1 |
24 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur | Fimmgangur F2 |
25 | Opinn flokkur – Meistaraflokkur | Gæðingaskeið PP1 |
26 | Unglingaflokkur | Tölt T3 |
27 | Unglingaflokkur | Tölt T4 |
28 | Unglingaflokkur | Fjórgangur V2 |
29 | Unglingaflokkur | Fimmgangur F2 |
30 | Unglingaflokkur | Gæðingaskeið PP1 |
31 | Unglingaflokkur | Tölt T7 |
32 | Ungmennaflokkur | Tölt T1 |
33 | Ungmennaflokkur | Tölt T2 |
34 | Ungmennaflokkur | Tölt T3 |
35 | Ungmennaflokkur | Fjórgangur V1 |
36 | Ungmennaflokkur | Fjórgangur V2 |
37 | Ungmennaflokkur | Fimmgangur F1 |
38 | Ungmennaflokkur | Fimmgangur F2 |
39 | Ungmennaflokkur | Gæðingaskeið PP1 |