Afreks- og hvatningarsjóður Fáks auglýsir eftir umsóknum um styrki í sjóðinn. Umsóknir um styrki þurfa að berast eigi síðar en til og með 15. október.
Aðeins knapar sem iðka íþrótt sína undir merkjum Fáks geta sótt um styrkveitingar í sjóðinn. Viðkomandi þarf því að vera skráður félagsmaður í Fáki og hafa greitt félagsgjöld, eigi það við og að hafa keppt undir merkjum Fáks á keppnistímabilinu.
Væntanlegur styrkþegi sem er afreksknapi, þarf að stefna að því að vera eða þegar vera í fremstu röð á stórmótum (Reykjavíkurmeistaramót, Íslandsmót, Landsmót, Norðurlandameistaramót og Heimsmeistaramót). Það styrkir umsóknina ef viðkomandi knapi er í U21 landsliði Íslands í hestaíþróttum og/eða í hæfileikamótun LH.
Sjóðurinn hefur einnig heimild til að styrkja efnilega einstaklinga eða hópa í yngri flokkum til þátttöku í námskeiðum á vegum félagsins og/eða til þátttöku á mótum, eftir því sem við á og þurfa þeir knapar ekki endilega að stefna á að stunda íþróttina sem afreksíþrótt.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur sjóðsins vel.
Umsóknir skal senda á fakur@fakur.is
Nánar er fjallað um úthlutunarskilýrði sjóðsins og form umsóknar í reglum sjóðsins sem er að finna í meðfylgjandi link: