Á fimmtudagskvöldið kemur, þann 28. maí verður kynning fyrir áhugasama ritara á Reykjavíkurmeistaramótinu sem haldið verður á mótssvæðinu okkar dagana 1-7. júní næstkomandi. Þetta verður kósýkvöld með kaffi/te og heimabökuðu og við ætlum að spjalla um hvað ritarastörfin snúast, skoða hvað er á bak við einkunn dómarans og hvers vegna það er svona mikil upplifun og skemmtun að rita á mótum. Þetta er kjörið tækifæri fyrir foreldra og nýja keppendur til að kynnast íþróttinni okkar og sjá hvernig dómari ber saman mismunandi hesta. Það verður nefnilega svakalega mikið af góðum hestum á mótinu í næstu viku!
- Að vera ritari gefur ykkur ómetanlega innsýn í starf dómarans
- Eins og venjulega verður happdrætti fyrir sjálfboðaliða mótsins
- Forgangur við úthlutun beitarhólfa ef skilað 15 tímum eða meira í sjálfboðavinnu fyrir Fák
- Eins og þetta sé ekki nóg, þá er þetta að sjálfsögðu besta sætið á vellinum
- Lýsishöllin fimmtudaginn 28. maí kl 20.
Við þiggjum alla aðstoð og ekki nauðsynlegt að vera lengi í einu sem ritari. Þeir sem vilja síður rita þá óskum við einnig eftir sjálboðaliðum í fleiri verkefni. Ekki hika við að vera í sambandi við okkur og endilega komið í kaffispjallið, það er engin skuldbinding falin í því.
Sjáumst hress,
mótanefndin