Síðasta laugardaga tókum við Fáksfélagar á móti Harðarmönnum í Óskoti og riðum með þeim heim í Víðidalinn þar sem Fákur bauð upp á veitingar. Næsta laugardag bjóða Harðarmenn Fáksmönnum upp á súpu á þeirra heimaslóðum að Harðarbóli (hesthúsahverfið) í Mosfellsbæ.

Þetta er tveggja hesta ferð en við hvetjum þá sem ekki hafa tök á að vera með tvo til reiða að ríða með okkur í Óskot. Harðarmenn mæta í Óskot og fylgja okkur að Harðarbóli.

Hlégarðsreiðin:

  • Lengd ferðar er áætluð 6.klst. og 30km. með súpustoppi.
  • Áætluð heimkoma kl 18:00
  • Tveggja hesta ferð.

Við leggjum til að Fáksfélagar sem koma úr Almannadalnum hitti okkur í áningargerðinu á nýju leiðinni upp frá Rauðavatni, austur undir og rétt hjá heitavatnsleiðslunni”.

Reiðleiðin: Víðidalur – Hólmsheiði – Óskot – norður fyrir Úlfarsfell – Mosfellsbær – Harðarból. Í bakaleiðinni er riðið meðfram sjónum, yfir Korpu, í gegnum golfvöllinn, undir Vesturlandsveginn og niður í Víðidalinn.

Við biðjum félaga vinsamlegast að tilkynna þátttöku til Gulla í GSM 824-6406 eða Sirrýjar í GSM 8600-420

Við vonumst til að sjá sem flesta og vonandi alla þá sem hafa komið með okkur í ferðirnar í vetur. Ekki hika við að deila þessari frétt með hestfærum vinum og vandamönnum.

Framundan

Framundan eru nýjungar hjá okkur sem við munum kynna betur síðar, en í stuttu máli er hugmyndin sú að setja hrossin á kerru og ríða út fjarri borginni. Við erum að skoða reiðleiðina inn í Marardal þann 14. maí. Meira um þá skemmtulegu reiðleið þegar nær dregur.

Kveðjur,
Gulli og Sirrý