Hreinsunardagur Fáks fer fram þriðjudaginn 5. maí klukkan 17:00.  Hreinsunardagurinn hefst kl. 17:00 og lýkur með grilli í anddyri Lýsishallarinnar frá kl. 18:30 – 19:00.

Allir sem vettlingi geta valdið eru beðnir að hjálpa til við að halda svæðinu okkar hreinu og snyrtilegu. Ruslapoka er hægt að nálgast í anddyri reiðhallarinnar.

Önnur verkefni sem við óskum eftir aðstoð við er að grjóthreinsa nokkrar reiðleiðir og hvetjum við félagsmenn til að hittast með hrífur við reiðhöllina klukkan 17:00 til að skipta með sér verkum. Eftirtaldar leiðir viljum við grjóthreinsa:

  • Frá Víðidal að Rauðavatni
  • Við austurhluta Rauðavatns
  • Við undirgöngin hjá Víðidal

Tekið er við rusli sem safnast sunnan við reiðhöllina.

Þeir sem eiga bagga eða rúllur á rúllusvæði eru beðnir um að mæta þangað og taka til hendinni við að týna plast úr trjám og runnum.

Ekki er tekið við rusli úr hesthúsum.

Margar hendur vinna létt verk!