Því miður þurftum við að fella niður síðasta reiðtúr þann 7. mars vegna veðurs og vonum nú að lukkan verði okkur hliðholl á laugardaginn kemur.

Þennan sama dag stendur mikið til hjá Fáki  Dagur reiðmennskunnar hefst kl 14:00 og Stórsýning Fáks kl 20:00.  Við viljum hvetja Fáksmenn til að kynna sér dagskránna hér á heimasíðunni.

Við ætlum að halda okkur við sömu ferð og áætluð var síðast, og ríða hringinn í kringum Elliðavatn og leggja af stað í þetta skiptið  frá Lýsishöllinni kl 11:00.

Hestar í þokkalegu formi ráða vel við túrinn enda ætlum við að stoppa amk tvisar á leiðinni.  Við vonumst til að sjá sem flesta og ekki síst þá sem hafa farið með okkur í vetur.

Við áskiljum okkur rétt til að breyta leiðinni ef veður og vindar verða okkur ekki hagstæð.

Kveðjur

Gulli, gsm 824-6406

Sirrý, gsm 8600-420