Fimmtudaginn 19. mars ætla reynsluboltarnir og keppnishjónin Siggi Matt og Edda Rún að vera í Lýsishöllinni og gefa endurgjöf á keppnisprógram hjá ungum Fáksurum. Hver knapi fær 20 min til að framkvæma keppnisprógram að eigin vali og fær svo endurgjöf á prógrammið.
Þeir sem ekki stefna á keppni eru einnig hvattir til að mæta, og fá endurgjöf á sig og hestinn sinn.

Hvetjum alla unga fáksara, börn, unglinga og ungmenni til að láta ekki framhjá sér fara þetta frábæra tækifæri með miklum reynsluboltum.

Fyirkomulagið er þannig að það verða 2 inni í einu á sama tíma í höllinni. Mikilvægt er að vera búin að hita upp hestinn sinn áður en tíminn byrjar.
Verð 3.500 kr

Skráning fer fram á Sportabler