Búið er að endurskilgreina götu- og húsnúmerakerfi hesthúsa í Faxabóli.

Frá því hverfið byggðist upp hefur aldrei verið skráð í skipulagssjá götu og húsnúmer hesthúsa í Faxabóli. Eini staðvísir/staðgreinir húsa hefur verið Vatnsveituvegur og hafa til dæmis komið upp tilvik þar sem viðbragðsaðilar hafa ekki fundið hesthús þar sem óskað hefur verið eftir aðstoð. Er það öryggisatriði fyrir félagsmenn og gesti þeirra að geta gengið að því sem vísu að viðbragðsaðilar geti á sem skjótastan hátt fundið viðfangsefni sín.

Félagið setti sig í samband við borgina og hefur starfsmaður hjá Umhverfis- og skipulagssviði sett inn götuheiti og númer húsa eftir deiliskipulagi frá 2005 og reglugerð um skráningu staðfanga. 

Núverandi merkingakerfi er því úrelt og mun Fákur á næstu dögum fjarlægja núverandi merkingar á húsum og setja ný númer í staðin.

Götuheiti hesthúsa í Faxabóli verða því Faxaból, Sölvaból, Hrafnaból og Asaból. Við Vatnsveituveg stendur félagsheimlið og hesthúsin gegnt því.

Með því að smella á myndina hér að neðan er hægt að sjá nýtt skipulag í borgarvefsjá Reykjavíkur.