Sunnudaginn 1 mars verður haldið grunnnámskeið í hestanuddi fyrir hestaeigendur. Námskeiðið byrjar á bóklegum hluta sem verður í Guðmundarstofu.
Ath námskeiðið er fyrir unga sem aldna. Það verður síðan boðið uppá framhaldsnámskeið eftir grunnnámskeiðið.
Verð: 6000kr
Dagskrá og lýsingu má sjá hér að neðan.
Kl. 11 – 13 (m. matarhléi)
- Farið verður í gegnum helstu vöðvahópa hestsins, staðsetningu og hlutverk.
- Farið í helstu nuddgrip sem notuð eru. Einnig hvenær nudd getur verið nytsamlegt og hvenær ekki á að nota nuddmeðferð.
- Einnig verður farið í hvað helstu vandamálin eru og hvernig við getum notað nuddmeðferð til að bæði fyrirbyggja og meðhöndla.
Kl. 13:30 – 16/17
- Farið verður í verklega kennslu þar sem nemendur verða 2 með einn hest og æfa sig. Farið verður í nuddaðferðir og æfingar
Hámarksfjöldi er 20 þátttakendur.
Kynning á fyrirlesara
Auður Sigurðardóttir/Hestanudd og heilsa – starfar meðal annars sem hestanuddari þar sem markmiðið er að stuðla að almennri heilsueflingu fyrir hross á öllum aldri og öllum stigum þjálfunar.
Menntun: Viðurkenndur hestanuddari frá NHT. Félagi í IEBWA (International Equine Body Worker Association).
Að auki:
- Sjúkraþjálfun og endurhæfing fyrir hesta
- Nám í Acupressure fyrir hesta
- Nám í notkun laser í meðferð
- Nám í tannheilsu hrossa
- Nám í hófaheilsu hrossa
- Nám í mátun reiðtygja, hnakka og höfuðútbúnaðar og méla.