Við hlökkum til að hitta Fáksfélaga í næsta félagsreiðtúr laugardaginn 21. febrúar. Brottför frá reiðhöllinni kl 14:00
Markmiðið er að styttri reiðleiðin verði Víðidalur – Rauðhólar – Almannadalur – Rauðavatnsgerðið og heim, en lengri leiðin verði Víðidalur – Rauðhólar – hringurinn austur af Fjárborgum – Rauðavatnsgerðið og heim. Hugmyndin er að í bakaleiðinni hittist hópurinn efst í löngu brekkunni (í stráunum) og ríði saman til baka inn í Víðidalinn.
Hestar í þokkalegri þjálfun ráða vel við báðar leiðir. Við fetum, við ríðum hægt tölt, við ríðum hraðara tölt og við brokkum (eða ekki).
Við áskiljum okkur rétt til að breyta leiðinni ef veður og vindar verði okkur ekki hagstæð.
Reiðvegirnir hafa verið harðir undanfarið og við þurfum að taka mið að því á leiðinni. Gott að vera vel klæddur í ull og lopa! og þykka hanska.
Við viljum þakka öllum þátttökuna síðast og vonumst til að það sé að myndast góður kjarni í reiðtúrunum. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þið viljið ræða t.d. vegalengdir og leiðina.
Kveðjur,
Gulli (GSM 824-6406) og Sirrý (8600-420)