Laugardaginn 17. janúar n.k. hefjast sameiginlegir útreiðatúrar fáksfélaga þennan veturinn. Langtímaspáin segir að það verði bjart og örlítill vindur. Gunnlaugur Briem (Gulli gsm: 8246406) og Sigríður Gunnarsdóttir (Sirrý: 8600420) vonast til að hitta sem flesta við Reiðhöllina í Víðidal kl 14:00. Okkar markmið er að ná til sem flestra sem hafa áhuga á að ríða út saman. Við setjum öryggið á oddinn og ef hópurinn er mjög ólíkur innbyrðis skiptum við okkur upp og förum í tveimur hópum. Hugmyndir okkar um reiðleið er kringum Rauðavatn, niður með Elliðaánum eða inn í Rauðhólana. Þegar nær dregur skoðum við vindaspánna og veljum í framhaldi leiðina.
Þetta kvöld heldur Fákur þorrablót, og við viljum endilega halda þeim sið í heiðri og ætlum að kalla þennan reiðtúr Þorrablótsreið. Sjá auglýsingu um Þorrablótið á heimasíðu Fáks Þorrablót Fáks – 17. janúar – Húsið opnar 19:00 – Fákur.
Góður fáksfélagi ætlar að bjóða ferðafélögum í hesthúsið sitt í hressingu eftir reiðtúr og vonandi sjá sem flestir sér fært að koma við.
Ekki hika við að slá á þráðinn til okkar,
Kveðja Gulli og Sirrý