Framundan er 3 viðburður fræðslunefnda hestamannafélaga á Höfuðborgarsvæðinu.
Fimmtudaginn 8.janúar ætlar fjölskyldan á Sunnuhvoli að koma og halda sýnikennslu í hestamannafélaginu Sörla, Hafnarfirði!
Þau Arnar Bjarki, Árný Oddbjörg, Glódís Rún og Védís Huld ætla að gefa okkur innsýn inn í sínar þjálfunar aðferðir og þeirra áherslu við þjálfun hrossana þeirra á veturna!
Húsið opnar klukkan 18:00 og verður í boði að kaupa veitingar fyrir sýnikennsluna sjálfa sem hefst klukkan 19:00. Hvetjum alla til að mæta tímanlega og gæða sér súpu og fleira hjá henni Stebbu!
Verð inn á sýnikennsluna er 2000kr en frítt verður fyrir börn 10 ára og yngri.
Hlökkum til að sjá ykkur í Sörla 8.janúar!
-Fákur, Hörður, Sprettur og Sörli