Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst mánudaginn 1. september kl 19.00 með bóklegum tíma í Guðmundarstofu. Hver þátttakandi kemur með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s:
-Atferli hestsins
-Leiðtogahlutverk
-Fortamning á trippi
-Undirbúningur fyrir frumtamningu
-Frumtamning
Bóklegir tímar: 1
Verklegir tímar: 11
Tímar: 3x í viku í 4 vikur
Verð: 71.500.-
Fjórir nemendur verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 –16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í TM-Reiðhöllinni og í hesthúsinu hjá Róberti þar sem unnið verður með trippin. Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.
Skráning fer fram á Sportabler og lýkur föstudaginn 29.ágúst
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband á netföngin robbi@hestar.is eða vilfridur@fakur.is