Fákur óskar eftir starfsmanni til að leiða og skipuleggja fræðslustarf félagsins.
Helstu verkefni:
- Umsjón og skipulagning fræðslustarfs.
- Samskipti við reiðkennara og uppsetning námskeiða í Sportabler.
- Eftirfylgni með fræðslustarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reiðkennararéttindi
- Góð samskipta- og skipulagshæfni
- Sjálfstæð vinnubrögð.
Umsóknarfrestur er til og með 12. október.
Upplýsingar veitir Hjörtur Berstað formaður í síma 893-7475.
Umsóknir skulu sendar á netfangið einar@fakur.is