Þá styttist í gleðina og hefst námskeiðið Kjarnakonur þann 15. maí og stendur til 9. júní.

Námskeiðið er sett upp á eftirfarandi hátt:
Verklegt 2x í viku: unnið er út frá getustigi og markmiði hverrar og einnar. Dagskráin verður fjölbreytt og skemmtileg.
Bóklegt 1x í viku: fyrirlestrar, sýnikennslur, líkamsrækt og kynningar og auðvitað almenn gleði!
Opinn tími 1x í viku: Frjáls mæting þar sem hægt er að nálgast reiðkennara til þess að fá aðstoð með einstök verkefni. Einnig er stefnt að tíma í frjálsum útreiðum.

Áhersla verður lögð á uppbyggjandi æfingar fyrir hest og knapa. Skýr markmið verða sett strax í upphafi námskeiðs og unnið út frá þeim í þeirri viðleitni að uppskera jákvæðari, traustari og getumeiri hest. Rík áhersla verður lögð á ábendingar og stjórnun knapans. Útreiðatúrar, fyrirlestrar, sýnikennslur, spjall og almenn gleði er hluti af námskeiðinu.

Þetta er tilvalið tækifæri fyrir konur sem vilja auka færni sína, tileinka sér hagnýtar aðferðir og njóta hestamennskunnar í hópi góðra kvenna.
Verð: 37.500.-
skráning á https://goo.gl/forms/uxkAQFXJkNjU33Qg2

Hlökkum mikið til sumarsins
Kv. Sif og Karen