Fyrstu vetrarleikar Fáks verða haldnir á laugardaginn næstkomandi, 15. febrúar klukkan 11:00. Vetrarleikar verða hefðbundnir og keppa pollar og börn inni í Lýsishöllinni og aðrir flokkar úti, með fyrirvara um veður og ástand vallar.
Skráning fer fram í skjali hér að neðan eða í Lýsishöllinni milli 10 og 10:30
Skráningu lýkur kl . 10:30 á laugardagsmorguninn.
Ekkert skráningargjald er fyrir þennan viðburð og er mótið opið fyrir alla.
Keppnisfyrirkomulagið er þannig að pollar og börn keppa inni í reiðhöllinni. Börn ríða upp á vinstri hönd hægt tölt og síðan frjálsa ferð. Úrslit verða riðin strax á eftir.
Úti skal sýna hægt tölt og frjáls ferð til baka, 2 ferðir. Úrslit á eftir hverjum flokki og verðlaunaafhending.
- Pollaflokkur (teymdir)
- Pollaflokkur (ríðandi)
- Barnaflokkur minna vanir
- Barnaflokkur meira vanir
- Unglingaflokkur – minna vanir
- Unglingaflokkur – meira vanir
- Ungmennaflokkur
- Fullorðnir /minna vanir
- Fullorðnir / meira vanir
Við viljum hvetja sem flesta til að skrá sig eða koma og fylgjast með