Vert er að benda á að allur akstur vélknúinna ökutækja á reiðvegum í kringum reiðhöllina er bannaður. Undanskilið þessu banni eru þeir sem eiga erindi í plastgáminn. 

Allt of mikil umferð er á þessum vegum nú þegar ríðandi umferð í og úr reiðhöllinni er í hámarki.

Búið er að loka porti fyrir aftan reiðhöllina og verður farið í frekari lokanir ef ekki verður farið eftir þessum fyrirmælum.