Bjóðum upp á reiðnámskeið fyrir þá sem vilja öðlast meiri færni í samskiptum við hestinn sinn. Læra að skilja hestinn betur og kenna hestinum á umhverfið.

Kennsla fer fram í hópum og einkakennslu.

Fyrsti tími er bóklegur og í framhaldi hefst verkleg kennsla það verða 9 verklegir tímar. Kennsla hefst um mánaðarmót janúar/febrúar.

Verð: 43.000.- kennt verður á þriðjudögum í TM reiðhöllinni Víðidal.

  • Hópur 1 kl. 11.00-11.50 Fyrir þá sem hafa verið áður hjá okkur
  • Hópur 2 kl. 17.00-17.50 Fyrir þá sem ekki hafa verið áður hjá okkur
  • Hópur 3 kl. 18.00-18.50.Fyrir þá sem hafa verið áður hjá okkur
  • Hópur 4 kl. 19.00-19.50 Fyrir vana knapa sem hafa áhuga á td knapamerkjum

Skráning á www.sportfengur.com

Að skráningu lokinni er hægt að senda línu á ss@sigrunsig.com og fá gjafabréf í jólapakkann

Útreiða-/hesthúsfélagar geta tekið fram ef þeir vilji vera saman.

Kennarar eru: Henna Siren og Sigrún Sig