Vegna dræmrar mætingar á Þorrahlaðborð Fáks undanfarin 2 ár hefur verið ákveðið að halda ekki viðburðinn í ár.

En örvæntið ekki því félagar okkar í Spretti verða með Þorrablót sitt næstkomandi laugardag, 3. febrúar, og eru Fáksfélagar velkomnir að halda upp á þorrann með þeim í veislusal félagsins í Sprettshöllinni.

Borðapantanir/miðapantanir fara fram í gegnum netfangið Sprettur@sprettarar.is,
Panta verður miða/borð fyrir 31.jan

Miðaverð er 11.900kr – eingöngu verður hægt að panta miða í forsölu.

  • Hreimur Örn Heimisson verður veislustjóri kvöldsins.
  • Sprettskórinn tekur nokkur lög.
  • Uppboð verður á folatollum á vegum hrossaræktarnefndar Spretts.
  • DJ Atli Kanill mun svo halda uppi stuðinu á dansgólfinu fram á nótt.

Hvetjum hestafólk um að sameinast og skemmta sér á Þorrablóti Spretts.

Miðar verða afhentir á föstudag, 2.feb kl 18-19 í Samskipahöllinni.