Fákur vill minna knapa á að skráningafrestur á Reykjavíkurmeistaramót Fáks er til miðnættis fimmtudaginn 30.apríl. EKKI verður tekið við skráningum sem berast eftir að skráningafrestur er runninn út.

Við viljum þakka öllum fyrir að skrá tímalega þar sem það gerir alla undirbúningsvinnu og mótshald auðveldara og farsælla.

Áætlað er að mótið hefjist þriðjudaginn 5.maí og ljúki sunnudaginn 10. Maí, drög að dagskrá birtast föstudaginn 1.maí.

Hlökkum til að sjá alla káta á hvammsvellinum!