Fákur biðlar til félagsmanna og annarra hestamanna sem fara um svæðið okkar að nota merktar reiðleiðir.

Í þýðunni í síðustu viku hafa hestamenn farið inn á göngustíga og hjólaleiðir á Hólmsheiði og stórskemmt göturnar. Í þessu felst mikið virðingarleysi gagnvart öðrum útivistarhópum.

Það er erfitt að ætlast til að reiðgötur séu einungis notaðar til útreiða ef við getum ekki borið virðingu fyrir göngu- og hjólaleiðum annarra útivistarhópa.